Hönnun: Ctrlzak, 2017 – Mogg
Framleitt eftir pöntun.
Afhendingartími fer eftir framleiðanda og er staðfestur við pöntun.
Bókahilla úr málmi sem fæst í fjórum áferðum: burnished, titanium, gold og hvítu RAL 1013. Hillurnar eru úr gleri og liturinn á glerinu er valinn við pöntun: brons, grænt eða extra light hvítt sýruætt gler.
Metrica fæst í fjórum einingum (A–D) og tveimur gerðum: frístandandi, 26 cm djúp, og sem vegghilla, 13 cm djúp. Lægri einingarnar (B og D) má festa á vegg, setja ofan á háu einingarnar eða á gólf, en þá þarf að kaupa stillanlega fætur sérstaklega.
Í frístandandi gerðinni þarf að panta glerhillusett með einingunni og er það innifalið í verðinu. Í veggútgáfunni eru glerhillur valkvæðar og ekki innifaldar í verðinu. Mælt er með veggfestingu.
Stærð
A - B78 x D26/13 x H190 cm
B - B78 x D26/13 x H70 cm
C - B45 x D26/13 x H190 cm
D - B45 x D26/13 x H70 cm
B = breidd, D = dýpt, H = hæð