Hönnun: Anya Sebton og Eva Lilja Löwenhielm, 2018 – Asplund
Framleitt eftir pöntun.
Afhendingartími fer eftir framleiðanda og er staðfestur við pöntun.
Sporöskjulaga sófaborð með undirstöðu úr gegnheilum eikar- eða askplötum. Borðplatan er úr spóni með kanti úr gegnheilli eik í sama lit og undirstaðan og er meðhöndluð með pólýúretanlakki. Fæst í mörgum litum. Aukaþyngd í undirstöðunni tryggir stöðugleika. Undirstaða og borðplata eru afhentar hvor í sínu lagi. Fæst í tveimur stærðum.
Efni
Borðplata: spónn eða harðplast.
Undirstaða: gegnheill viður.
Litaval
Natural Oak (PU1), White Stained Oak (PU2), White Stained Ash (APU2), Teak Stained (APU7), Dark Grey (APU8), Chestnut Stained (APU10) eða Charcoal Stained (APU11).
Stærð
Palais Ovale - B110 x D75 x H43,5 cm
Palais Ovale Large - B150 x D102 x H43,5 cm
B = breidd, D = dýpt, H = hæð