Shark Lounge

372.720 kr.
Fjöldi:

Hönnun: René Holten – Artifort

Framleitt eftir pöntun.
Afhendingartími fer eftir framleiðanda og er staðfestur við pöntun.

Þótt stóllinn dragi nafn sitt af því hve líkur vangasvipur hans er ógnvekjandi rándýri er ekkert að óttast. Þvert á móti er einstaklega þægilegt að sitja í Shark Lounge. Hann er líka traustur og veitir bakinu aukinn stuðning.

Shark Lounge er langþráð viðbót við Shark-fjölskylduna. Skel þessa meðalstóra hægindastóls, með einkennandi háu baki, sker sig úr vegna sérstakrar undirstöðunnar. Shark Lounge fæst í tveimur útfærslum: með snúanlegum málmfæti sem fylgir útlínum bólstruðu skeljarinnar eða með glæsilegri stálgrind sem mótuð er úr einu röri.

Stærð

Skoðaðu líka

Nýlega skoðað